"Boðið í bíó"

Félagsmönnum STÚA og gestum þeirra býðst nú að koma með í bíó laugardaginn 13. ágúst í samvinnu við Borgarbíó. Valið stendur á milli tveggja mynda. Annars vegar gefst kostur á að sjá fjölskyldu – myndina „STRUMPANA“ í 3D með íslensku tali. Athugið að 3 víddar-gleraugu fylgja ekki ! Sú mynd er sýnd kl. 18:00. Verð: ókeypis fyrir STÚA – félaga en verð fyrir gesti er kr. 1.100,-

”popp & kók” fylgir hverjum miða

Hins vegar er boðið upp á hasar – myndina „Cowboys & Aliens“ sem sýnd verður kl. 20:00.

Verð: ókeypis fyrir STÚA - félaga en verð fyrir gesti er kr. 1.100,-

”popp & kók” fylgir hverjum miða

vinsamlega skrifið ykkur á þátttökulista í síðasta lagi fimmtudaginn 11. ágúst n.k. kl. 17:00

Stjórn STÚA