Aðalfundur STÚA 2014

Aðalfundur STÚA fyrir árið 2013 sem fyrirhugað var að halda 15. febrúar 2014 verður þess í stað haldinn í matsal ÚA við Fiskitanga fimmtudaginn 20. febrúar nk. og hefst hann kl. 20:00. Dagskrá fundarins:  

1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins
5. Lagabreytingar ( sem borist hafa viku fyrir boðaðan fund ).
6. Kosningar: 
a. Tveir stjórnarmenn og þrír varamenn
b. Tveir endurskoðendur og einn til vara
7. Ákvörðun um árgjald
8. Önnur mál
9. Fundarslit

Vinsamlega athugið ! Samkvæmt lögum félagsins verða tillögur og framboð til stjórnar að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir aðalfund. Stjórn mun taka við tillögum og framboðum til kl. 15:30 þriðjudaginn 18. febrúar nk. Einnig má senda inn á netfangið: stua@stua.is fyrir kl. 20:00 þann sama dag.

Veitingar, léttur matur og drykkur, í boði félagsins verða bornar fram fyrir fundinn; frá kl. 19:30

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.

stjórn STÚA