Aðalfundur 2015

Aðalfundur STÚA verður haldinn í matsalnum þriðjudaginn 24. febrúar nk.og hefst hann kl. 20:00. Dagskrá fundarins:
1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Reikningar félagsins
5. Lagabreytingar ( tillögur sem borist hafa skv. lögum )
6. Kosningar:
    a. formaður
    b. tveir stjórnarmenn og þrír varamenn
    c. Tveir endurskoðendur og einn til vara
7. Ákvörðun um árgjald
8. Önnur mál
9. Fundarslit

vinsamlega athugið ! Samkvæmt lögum félagsins verða tillögur og framboð til stjórnar að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir aðalfund.

Stjórn mun taka við tillögum og framboðum til kl. 20:00 sunnudaginn 22. febrúar nk.

Einnig má senda inn á netfangið: stua@stua.is fyrir kl. 20:00 þann sama dag.

Athugið !
veitingar, léttur matur og drykkur, í boði félagsins verða bornar fram fyrir fundinn; frá kl. 19:30.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.

Stjórn STÚA