Laugardagskvöldið 21. nóvember nk. kl. 20:00 - verður boðið upp á fjölbreytt og glæsilegt í matsal ÚA.  

Jólahlaðborðfrá LOSTÆTI:

Hægt er að skoða matseðilinn hér að neðan.

Hljómsveitin:BRIMNES frá Vestmannaeyjum skemmtir.

verð: kr. 950 fyrir STÚA - félaga

verð: kr. 4.900 fyrir gesti ...

( miðaverð f. gesti m.v. kostnað fyrir matinn / fullt verð u.þ.b. kr. 9.000 )

HAPPDRÆTTI ! … fyrir félagsmenn!

BARINN … … verður að sjálfsögðu opinn og mun ágóði ( ef einhver verður ) renna í Ferðasjóð STÚA!

Vinsamlega skráið ykkur á þátttökulista EIGI SÍÐAR en miðvikudaginn 18. nóvember nk. kl. 15:00 Virðið skráningarfrest!

Stjórn STÚA

Matseðill:

Dillgrafinn lax með sinnepssósu

Jólakjötpaté með Cumberlandsósu

Saltfiskur á salatbeði með sinnepi, hunangi og appelsínum

Karrí- og epla síldarsalat

Hangikjöt með heimalöguðu rauðkáli

Hunangsgljáð Bayonneskinka með Waldorfsalati

Purusteik með sykurbrúnuðum kartöflum

Meðlæti: Sykurbrúnaðar kartöflur, kartöflu uppstúf, grænar baunir, heimalagað rauðkál, laufabrauð, nýbakað brauð, heimabakað rúgbrauð og smjör.

Kaffi & konfekt