PRAG - breytt áætlun
24.03.2008
Eftir að Heimsferðir aflýstu fyrirhuguðu beinu flugi sínu frá Akureyri til PRAG 14. mars nk. með stuttum fyrirvara var farið að kanna möguleikann á að þeir félagsmenn sem áhuga hefðu héldu sínu striki og færu til Prag.
Í ljós kom að hægt var að fara 24. mars ( annan í páskum ) og koma heim aftur 31. mars eða heil vika, en sá hængur er á að sú ferð er frá Keflavík . Það var strax ljóst að breytt fyrirkomulag hentaði alls ekki öllum sem höfðu skráð sig í fyrri ferðina en nú eru samt sem áður 28 manns búnir að skrá sig í ferðina, þar af eru 19 félagsmenn. Það er líklega enn möguleiki á að bóka sig í nokkra daga enn ef einhverjir skyldu vera að velta því fyrir sér að koma með. Ferðin er á hagstæðum kjörum eða 52.790 krónur á mann m.v. tveggja manna herbergi. Innifalið er flug, gisting á fjögurra stjörnu hóteli með morgunmat, gjöld og akstur til og frá hóteli.