25 ára afmælishátíð STÚA

Í tilefni 25 ára STÚA, sem er 20. apríl nk., hefur verið ákveðið að efna til hátíðarskemmtunar laugardagskvöldið 5. maí nk.

Eftir er að hnýta alla lausa enda en þó er ljóst að boðið verður upp á þríréttaðan kvöldverð, Gísli Einarsson, fréttamaður, hefur tekið að sér að vera veislustjóri og síðast en ekki kemur Jón Bjarnason, sem er félagsmönnum að góðu kunnur, til með að spila fyrir dansi. Nánara fyrirkomulag verður auglýst þegar nær dregur.