Íþróttatímar hefjast á ný

STÚA og BRIM hafa ákveðið að halda áfram að bjóða starfsmönnum áfram upp á þrjá ( 3 ) fasta íþróttatíma í vetur:

Tímarnir verða að öllum líkindum með svipuðum hætti og áður en einn tími hefur verið færður til föstudags kl. 18:00 til reynslu. Tímarnir verða því í Vaxtarræktinni ( Íþróttahöllinni ) á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:00 og á föstudögum kl. 18:00

Gert er ráð fyrir að þeir sem skrái sig greiði kr. 1.000 á mánuði m.v. að lágmarksþátttaka sé 20 manns, gæti breyst m.v. þátttöku. ( þeir sem skrá sig ráða sjálfir hvort þeir mæta í alla tímana eða bara suma ). BRIM & STÚA áskilja sér rétt til að endurskoða fjölda tíma verði þátttaka og mæting ekki ásættanleg!

Allir félagsmenn eru velkomnir að koma og vera með og jafnframt er verið að kanna aðra möguleika varðandi íþróttir og / eða sund

Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að skrá sig á þar til gerða þátttökulista sem allra fyrst ( í síðasta lagi miðvikudag 16. janúar. nk. )