Áskriftarkort Leikfélagsins

Einstakt tilboð til félagsmanna STÚA: Félagsmenn STÚA og gestir þeirra hafa í gegnum tíðina átt margar góðar og ánægjulegar stundir í Leikhúsinu og frá því sala áskriftarkorta hófst hjá Leikfélagi Akureryar hafa þau átt miklum vinsældum að fagna hjá félagsmönnum.

Nú er nýtt og fjölbreytt leikár að hefjast og ákveðið hefur verið að bjóða upp á sama fyrirkomulag á og verið hefur undanfarin ár. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa eru þurfa að hafa samband við stjórn ( Nánari upplýsingar: Lilja Björk ) og fá áritað pöntunarblað sem síðan er framvísað í leikhúsinu.
Áskriftarkort LA gilda á fjórar af átta sýningum vetrarins. Korthafi fær þrjár af fastasýningum LA.og velur eina sýningu að auki. sjá nánar á: www.leikfélag.is. Fjölmörg viðbótarfríðindi fylgja kortinu.

verð: 5.900 kr. fyrir STÚA – félaga ( sama verð og í fyrra )
7.900 kr. fyrir aðra gesti / 1.950 kr. fyrir STÚA - félaga yngri en 25 ára.
Athugið: Almennt miðaverð 12.400 kr. ( Fjölmörg viðbótarfríðindi fylgja kortinu )
Landsbankinn niðurgreiðir kort fyrir alla sem eru 25 ára og yngri, þeir fá því kortið á 3.950 krónur.
Athugið: Almennt miðaverð kr. 13.800.
Dregið af launum: Skv. venju verður hægt að láta draga kortaverðið af launum í allt að 3 skipti fyrir þá sem það vilja.
Vinsamlega skilið skráningarblöðun til miðasölu LA ( eða Lilju ) sem allra fyrst.

Stjórn STÚA