Grillaðir Hvanndalsbræður?
20.09.2008
Laugardagskvöldið 20. september nk. verður haldin kvöldskemmtun í matsalnum.
Á matseðlinum verður að öllum líkindum grillmatur og viðeigandi meðlæti. Náðst hafa samningar við hina einu sönnu Hvanndalsbræður um að mæta á svæðið og vonandi standa þeir undir væntingum. Síðan er bara að fjölmenna og mæta með góða skapið :-)
Verð: kr. 950 fyrir STÚA - félaga / kr. 2.250 fyrir gesti ( ath. fullt verð u.þ.b. kr. 3.000 á mann)