"Sumargjöf" STÚA / BÓNUS - kort

Nokkur hefð hefur skapast að STÚA - félagar fái einhvers konar "sumargjöf" og hefur þetta mælst nokkuð vel fyrir.

Þessar "sumargjafir" hafa verið með ýmsu sniði en í ár var ákveðið að leita til BÓNUSS og kaupa þar inneignarkort fyrir félagsmenn. Í allt eru þetta um 145 félagsmenn STÚA á Akureyri og Grenivík sem fá því inneignarkort í Bónusverslanir að upphæð kr. 1.500 hvert kort. Þeir félagsmenn sem ekki hafa nú þegar fengið slíkt kort í hendur eru beðnir að vitja þeirra til Óskars Ægis eða hafa samband ið aðra stjórnarmenn.

Það er von stjórnar að félagsmenn geti nýtt og notið þessara korta.

Gleðilegt sumar ! ... takk fyrir veturinn.