"Boðið í bíó"

Félagsmönnum og gestum þeirra býðst nú, í samvinnu við Borgarbíó, að koma með í bíó miðvikudaginn 26. ágúst að sjá myndina: The Taking of Pelham 1 2 3 með eðalleikurunum Denzel Washington & John Travolta

... þetta er magnaður spennutryllir. Vopnaðir menn taka sér gísla í neðanjarðarlest í New York og hóta öllu illu ef borgin greiðir þeim ekki lausnarfé fyrir hvern gísl. Lestarstarfsmaðurinn Walter Garbe (Denzel Washington) upplifir sína verstu martröð þegar hann þarf að takast á við höfuðpaur glæpamannanna (John Travolta).


Verð:
ókeypis fyrir STÚA-félaga / sumarstarfsmenn velkomnir ( líka þeir sem eru hættir )
taka má 1 gest með og er verð kr. 600,- fyrir hann ( kr. 1.000,- fyrir fleiri ef fjöldi leyfir )
”popp & kók” fylgir hverjum miða

vinsamlega skrifið ykkur á þátttökulista í síðasta lagi miðvikudaginn 19. ágúst n.k.

Stjórn STÚA