Áskriftarkort Leikfélagsins

Einstakt tilboð til félagsmanna STÚA: Félagsmenn STÚA og gestir þeirra hafa í gegnum tíðina átt margar góðar og ánægjulegar stundir í Leikhúsinu og frá því sala áskriftarkorta hófst hjá Leikfélagi Akureyrar hafa þau átt miklum vinsældum að fagna hjá félagsmönnum.

Nú þegar nýtt leikár er að hefjast hefur verið ákveðið hefur verið að bjóða upp á sama fyrirkomulag á og verið hefur undanfarin ár. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa eru þurfa að hafa samband við stjórn ( Nánari upplýsingar: Óskar Ægir ) og fá áritað pöntunarblað sem síðan er framvísað í leikhúsinu.

Áskriftarkort LA gilda á fjórar af 12 sýningum vetrarins. Korthafi fær þrjár af fastasýningum LA.og velur eina sýningu að auki. sjá nánar á: www.leikfelag.is . Fjölmörg viðbótarfríðindi fylgja kortinu.

verð:
5.900 kr. fyrir STÚA – félaga ( sama verð og í fyrra )
7.900 kr. fyrir aðra gesti .
Vekjum athygli á að allir sem eru 25 ára og yngri fá kortið á 3.950 krónur og því fá STÚA - félaga yngri en 25 ára kortið á 1.950 krónur.

Almennt miðaverð kr. 13.800. ( Fjölmörg viðbótarfríðindi fylgja kortinu )

Dregið af launum: skv. venju verður hægt að láta draga kortaverðið af launum í allt að 2 skipti fyrir þá sem það vilja.
Vinsamlega skilið skráningarblöðun til miðasölu LA ( eða Óskars ) sem allra fyrst.

Í síðasta lagi 18. september nk.

Stjórn STÚA