Skemmtiferð

Í tilefni af 25 ára afmæli STÚA, 20. apríl nk. ætlum við að fara í létta “DAGSFERД laugardaginn 21. apríl.

Skemmtiferð laugardaginn 21. apríl,

Farið verður með rútu frá bílastæði ÚA kl. 13:30
Byrjað verður á að fara til Dalvíkur og m.a. verður Byggðasafnið heimsótt, en þar er t.d. að sjá ,,Kristjánsstofu” til minningar um Kristján Eldjárn, forseta, ”Jóhannsstofu” um Jóhann Svarfdæling, ,,Jarðskálftasýningu” o.fl. Einnig verður komið við í bjórverksmiðjunni á Árskógsströnd og ,KALDI ,,skoðaður”. Ferðin endar síðan á Greifanum.

Verð: f. STÚA-félaga: kr. 900,- / fyrir gesti: kr. 2.900,-
( ath. reikna má með að fullt verð sé u.þ.b. kr. 3.500 )
vinsamlega skrifið ykkur á þátttökulista í síðasta lagi þriðjudaginn 17. apríl n.k.