Styttist í árshátíð

Nú er aldeilis að styttast í árshátíðina okkar 8. maí nk. og þriðjudaginn 27. apríl verða auglýsingar og þátttökulistar settir upp.Í boði verður þríréttuð veislumáltíð og góð skemmtun og dansleikur á eftir. Ókeypis verður fyrir starfsmenn BRIMS en allar nánari upplýsingar verða á þar til gerðum auglýsingum. Skráningarfrestur vegna þátttöku er til kl. 17 föstudaginn 30. apríl nk. Þeir sem það vilja er velkomið að senda þátttökutilkynningar á stua@stua.is eða á ob@brimhf.is.