„Litlu jólin“ 2023

Eins og áður hefur komið fram hefur verið ákveðið að „Litlu jólin“ í ár verði í matsal ÚA 25. nóvember nk. 

Þar býðst STÚA – félögum og gestum m.a.:
 

Veislustjórn & skemmtiatriði:

Hlaðborð frá MÚLABERGI

Hljómsveit & ball á eftir matnum.

Húsið opnar kl. 18:30 / matur um kl. 19:00

Matseðill er hér að neðan.

Verðið er:

kr. 2.500  fyrir STÚA – félaga*

kr. 11.900  fyrir aðra**

* sama verð og 2018 og í fyrra!

** Möguleiki á að skipta greiðslu í 2x eða 3x fyrir þá sem eru með gesti.

Reikna má með að fullt verð geti verið u.þ.b. kr. 18.000 á mann!

Munið:      

Skráningu lýkur kl. 20:00 miðvkudaginn 22. nóvember!

SKRÁNING *

* Einnig hægt að skrá hjá Óskari á skrifstofu!

 
stjórn STÚA
 
Matseðill:
Forréttir:
Rauðrófusíld
Hátíðarsíld
Grafinn lax
Villibráðarpaté
Tvíreykt Hangikjötssalat
Nauta Carpaccio
Rósakál (vegan)
- Rúgbrauð, laufabrauð, súrdeigsbrauð, smjör og sósur
 
Aðalréttir:
Hamborgarhryggur
Villikryddað Lambalæri
Kalkúnabringur
Hvítar Kartöflur - Sykurbrúnaðar Kartöflur  - Sætar Kartöflur - Steikt Rótargrænmeti - Grænar Baunir - Rauðkál - Uppstúfur - Villisveppasósa
 
Eftirréttir:
Súkkulaðikaka
Ris a la mande
Karamellusósa
Konfekt og smákökur