Starfsemi í dvala
Það er okkur öllum ljóst að félagsstarfið hefur að mestu legið í dvala síðustu vikur og mánuði og ástæðuna fyrir því.
Í ljósi aðstæðna og gildandi sóttvarnarreglna höfum ekki verið í stöðu til að skipuleggja viðburði né neins konar hópamyndun og er stjórn félagsins sammála um að fara hægt af stað meðan heimsfaraldur kórónuveirunnar gengur yfir og ekki er enn útséð með hvernig það þróast.
Það er fullur vilji hjá þeim sem nú sitja í stjórn og varastjórn að gera það sem í okkar valdi stendur með aðstoð félagsmanna að gera eins gott og skemmtilegt um leið og tækifæri gefst. Ætlum okkur að sjálfsögðu að vera í samstarfi við félagsmenn um framhaldið að loknum sumarfríum og þiggjum allar góðar tillögur og ábendingar.
Stjórn STÚA