Styttist í pottinn
20.08.2007
Eins og fram kom á 25 ára afmælishátíð STÚA í vor ákvað BRIM að gefa Starfsmannafélaginu nýjan heitan pott við Lyngholt, bústað félagsins í Aðaldal.
Stjórn STÚA er búin að yfirfara þá kosti og möguleika sem voru í boði og raunhæfir þóttu. Lokaákvörðun um hvaða tilboði verður tekið mun liggja fyrir á næstu dögum og þá ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að koma nýjum potti í gagnið.