Jólahlaðborð 2018

Eins og áður hefur komið fram hefur verið ákveðið að breyta örlítið til frá hefðinni varðandi „Litlu jólin“ og laugardagskvöldið 1. desember býðst því STÚA – félögum og gestum þeirra að koma með á „Jólahlaðborð Hótels KEA“.

Matseðil má finna á Facebook-hópi og á auglýsingatöflum:

  Verðið er:

   kr. 1.900  fyrir STÚA – félaga*

   kr. 9.100  fyrir aðra*

    * Möguleiki á að skipta greiðslu í tvennt fyrir þá sem eru með gesti.

Athugið að skráning fer fram dagana:

12. – 19. október nk.


stjórnin