Lítil starfsemi

Eðli máls samkvæmt hefur starfsemi STÚA að mestu legið niðri síðustu vikur.

Hvorki hafa verið skipulagðir viðburðir né ferðalög í sumar og er stjórn félagsins sammála um að fara hægt af stað meðan heimsfaraldur kórónuveirunnar gengur yfir og ekki er enn útséð með hvernig það þróast.

Ætlum okkur að sjálfsögðu að vera í samstarfi við félagsmenn um framhaldið að loknum sumarfríum og þiggjum allar góðar tillögur og ábendingar.

Stjórn STÚA